Heimskviður public
[search 0]
Plus
Téléchargez l'application!
show episodes
 
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
  continue reading
 
Loading …
show series
 
Það er sem betur fer ekki víða í heiminum sem konum er bannað með lögum að tala og syngja á almannfæri. En þannig er staðan í Afganistan, nú rétt rúmum þremur árum eftir valdatöku talibana. Ólöf Ragnarsdóttir fjallar um stöðu kvenna í Afganistan sem versnar með hverjum deginum. Hún ræðir meðal annars við Írisi Björgu Kristjánsdóttur sem nýverið sat…
  continue reading
 
Eitt óhugnarlegasta kynferðisbrotamál síðari tíma er nú fyrir dómi í Frakklandi. Dominique Pelicot er þar á sakamannabekknum en hann hefur játað að hafa síðastliðinn áratuginn byrlað eiginkonu sinni til 40 ára og boðið fjölda manns að nauðga henni. Ofbeldtið tók hann upp á myndbönd og vistaði samviskusamlega í tölvunni sinni með nöfnum gerenda og d…
  continue reading
 
Yfirvöld á Ítalíu hófu í síðustu viku morðrannsókn eftir að lúxussnekkjan Bayesian sökk við strendur Sikileyjar. Sjö létu lífið þegar skipið sökk. þar á meðal auðjöfurinn Mike Lynch, annar eigandi snekkjunnar og átján ára dóttir hans. Nú er unnið að rannsókn á flakinu og vonast er til að hún varpi ljósi á það hvað gerðist og hvernig snekkjan sökk, …
  continue reading
 
Sjötta þáttaröðin af Heimskviðum hefst með samantekt á afar viðburðaríku sumri í Bandarískum stjórnmálum. Á einungis tæpum tveimur mánuðum hefur einum forsetaframbjóðanda verið sýnt banatilræði og tveir hafa dregið framboð sín til baka. Birta og Bjarni Pétur fara yfir atburðarásina og spá í framhaldið. Þá skoðar Arnar Björnsson umhverfisáhrif Ólymp…
  continue reading
 
Við ætlum að byrja í Mexíkó. Þú ræddir í vetur Birta við Azam Ahmed, blaðamann á New York Times, í vetur um bók sem hann skrifaði um sögu Miriam Rodríguez. Hún er frá Mexíkó og dóttur hennar var rænt og hún drepin af mönnum sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum. Hún ákvað að taka málin í sínar hendur og við fjölluðum um sögu hennar en einnig miklu…
  continue reading
 
Sumarheimskviður halda áfram, í dag ætlum við að rifja upp umfjöllun um tvær konur sem hafa mikið verið í fréttum á þessu ári. En á ólíkum sviðum þó, þetta eru Taylor Swift og Caitlin Clark.Sérfræðingarnir í líkja Taylor Swift við Lionel Messi eða við rúllandi snjóbolta sem sífellt hleður utan á sig. Segja hana venjulega stelpu sem mörg geti samsva…
  continue reading
 
Árið 1993 kom út tónlistarmyndband við lagið Runaway Train með bandarísku hljómsveitinni Soul Asylum. Í myndbandinu voru sýndar myndir af börnum sem lýst hafði verið eftir. Mörg þeirra gáfu sig fram í kjölfar sýningar myndbandsins auk þess sem vinsældir myndbandsins skiluðu því að vitað varð um afdrif margra barnanna til viðbótar. Birta fjallaði um…
  continue reading
 
Indverjar náðu þeim merka áfanga fyrr á þessu ári að verða fjölmennasta þjóð heims. Og það er ekkert smá umstang þegar fjölmennasta ríki heims gengur til kosninga, eins og var raunin nú í vor. Enda tóku kosningarnar margar vikur. Fyrr í vetur fjallaði Guðrún Hálfdánardóttir um Indland í Heimskviðum, svolítið til að gefa innsýn inn í í hvaða umhverf…
  continue reading
 
Yfirvöld í einræðisríkinu Sádi-Arabíu eru sökuð um íþróttaþvætti (sportswashing á ensku) með því að setja fjármuni í íþróttir víða um heim til að bæta ímynd sína. Þetta hefur víða heppnast vel frá þeirra sjónarhóli. Eitt dæmi um þetta er að síðasta sumar komu margir af bestu knattspyrnumönnum heims í lið í sádiarabísku deildinni gegn himinháum laun…
  continue reading
 
Í mars voru 20 ár liðin frá mannskæðasta hryðjuverki í Evrópu á þessari öld. Þá voru sprengdar 10 sprengjur í og við Atocha-lestarstöðina í miðborg Madrid, höfuðborgar Spánar. Þessa ódæðis var minnst á Spáni fyrr á þessu ári en atburðurinn markaði djúp sár í spænska þjóðarsál og hafði einnig gríðarleg áhrif á spænsk stjórnmál vegna atburðarásarinna…
  continue reading
 
Við ætlum að vera í Danmörku í SumarHeimskviðum dagsins og ætlum að byrja í Kristjaníu. Þetta er umfjöllin frá því í desember þegar Hallgrímur Indriðason fór með okkur á Pusherstræti. Fyrr á þessu ári var kannabissölu hætt alfarið í fríríkinu, en þessi umfjöllun var unnin í aðdraganda þess. Annað stórt fréttamál frá Danmörku var í vor þegar við fyl…
  continue reading
 
Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur verið í talsverðum vandræðum undanfarin ár. Fyrirtækið hafði átt áratuga sögu sem framleiðandi öruggra og góðra farþegavéla. Hvað fór eiginlega úrskeiðis? Hallgrímur Indriðason leitaði svara við því Yfir 13 þúsund manns hafa hjólað Tour de France. Fleiri en sex þúsund sem hafa komist á tind Everest. Yfir 550 hafa…
  continue reading
 
Við fjöllum um það sem gerist úti í heimi í þessum þætti alla jafna en ætlum að seilast aðeins lengra í upphafi þáttar. Nánar tiltekið út í geim. Geimrannsóknarstofnun Bandaríkjanna - NASA - vill breyta umræðu um fljúgandi furðuhluti og færa á hærra plan. Nær vísindum og frá æsingu og samsæriskenningum. Og liður í því er einmitt að hætta að kalla þ…
  continue reading
 
Það var mótmælt hressilega á Tenerife nú í vor. Íbúar eyjunnar vinsælu eru orðnir langþreyttir á áhrifum ferðamannastraumsins þangað. Dagný Hulda Erlendsdóttir fór með okkur til Tene. Annar staður sem ferðmennskan hefur haft gríðarleg áhrif á eru Feneyjar.Borgaryfirvöld í Feneyjum byrjuðu í ár að rukka ferðamenn fyrir að koma til borgarinnar. Þar h…
  continue reading
 
Í Sumar-Heimskviðum rifjum við upp efni út þáttum vetrarins og búum til nýja þætti úr áður fluttu efni okkar. Öldum saman hafa stríð verið háð vegna auðlinda og hver er ein dýrmætasta auðlind veraldar? Það er vatnið. Það þrifist ekki líf á plánetunni jörð án þess. Staðbundin átök, skærur eða deilur milli hópa vegna vatns eru algeng en ekki hefur en…
  continue reading
 
Draumar og prestar verða í forgrunni í Heimskviðum í dag. Við ætlum fyrst að skyggnast á bak við kirkjutjöldin í Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Æðsti leiðtogi hennar í Moskvu, Kirill patríarki, hefur stutt allsherjarinnrás Rússlandshers í Úkraínu og sumir halda því fram að kirkjan sé í raun hluti af áróðursmaskínu stjórnvalda. Dagný Hulda Erlends…
  continue reading
 
Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er í fullum gangi en Bandaríkjamenn kjósa sér nýjan forseta þriðjudaginn 5.nóvember. Nýr verður hann nú reyndar ekki, því þeir tveir sem til greina koma, eins og velflestir vita, heita Donald Trump og Joe Biden. Þetta er í fyrsta sinn í næstum sjötíu ár síðan sömu nöfnin eru á kjörseðlinum tvennar kosningar í röð. T…
  continue reading
 
Yfir 30 þúsund Bretar fengu sýkt blóð með veirum á borð við HIV og lifrarbólgu C við blóðgjöf á árunum 1970 til 1991. Samkvæmt rannsóknarskýrslu sem birt var í vikunni er ljóst að ráðamenn reyndu að breiða yfir hneykslið, til að mynda með því að eyða gögnum um það árið 1993. Þau sem þáðu smitaða blóðið gerðu það ýmist eftir slys, vegna skurðaðgerða…
  continue reading
 
Stríðið í Súdan er stundum kallað gleymda stríðið en áralöng átök hafa valdið því að stór hluti súdönsku þjóðarinnar er á barmi hungursneyðar. Ógnarmargir íbúar þessa þriðja stærsta lands Afríku er á flótta en það hafa aldrei áður verið jafn margir á flótta innan eigin lands á heimsvísu. Það eru alls um 75,9 milljónir jarðarbúa og talsvert hefur fj…
  continue reading
 
Rúm milljón manns í Rafah á Gaza bíður milli vonar og ótta hvort og þá hvenær allsherjarinnrás Ísraelshers í borgina hefjist. Við beinum sjónum okkar þangað í þættinum í dag. Við ætlum líka að rýna í söguna. Samband Bandaríkjanna og Ísraels hefur verið undir smásjánni nú þegar flest spjót standa á Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sem h…
  continue reading
 
Sjónvarpsþættirnir Baby Reindeer njóta mikilla vinsælda hér á landi og eru þeir vinsælustu á streymisveitunni Netflix um þessar mundir. Þættirnir segja sanna sögu ungs manns sem lendir í eltihrelli. Ólöf Ragnarsdóttir skoðaði fyrirbærið og þættina vinsælu. Skæð fuglaflensa, eða H5N1 eins og núverandi afbrigði er kallað, er vaxandi áhyggjuefni meðal…
  continue reading
 
Við fylgdumst mörg með hinni sögufrægu bygginguBørsen brenna í fréttum á dögunum. Byggingin sem fæst okkar hafa líklega komið inn í nema við höfum átt erindi við viðskiptaráð Danmerkur undanfarin ár, eða þar áður lagt leið okkar í kauphöll landsins. En bygginguna hafa flest sem hafa rölt um stræti Kaupmannahafnar séð. Hún skar sig úr, ekki síst veg…
  continue reading
 
Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur verið í talsverðum vandræðum undanfarin ár. Fyrirtækið hafði átt áratuga sögu sem framleiðandi öruggra og góðra farþegavéla. Hvað fór eiginlega úrskeiðis? Hallgrímur Indriðason leitar svara við því. Körfuboltakonan Caitlin Clark er á vörum allra sem fylgjast með körfubolta í Bandarkjunum og víðar og hún er ekki e…
  continue reading
 
Borgin Kharkviv er núna eitt helsta skotmark Rússa og skortur á öflugum loftvarnarkerfum hafa gert hana og ýmsa innviði í Úkraínu að auðveldari skotmörkum en áður. Rússar hafa hert mjög árásir undanfarið og margir, það á meðal forseti Úkraínu, búast við sókn þeirra á næstu vikum og mánuðum, þegar sumarið er komið og leðjan á vígvellinum er þornuð. …
  continue reading
 
Árið 1993 kom út tónlistarmyndband við lagið Runaway Train með bandarísku hljómsveitinni Soul Asylum. Í myndbandinu voru sýndar myndir af börnum sem lýst hafði verið eftir. Mörg þeirra gáfu sig fram í kjölfar sýningar myndbandsins auk þess sem vinsældir myndbandsins skiluðu því að vitað varð um afdrif margra barnanna til viðbótar. Birta Björnsdótti…
  continue reading
 
Loading …

Guide de référence rapide